Haust í Køben
28.10.2008 | 21:32
Nú er bara læra læra læra. Lítið búin að gera annað. Halldór er reyndar lítið búinn að vinna, kom heim um 2 leitið í gær eftir að hafa hangið aleinn í vinnunni. Allir samstarfsfélagar hans í fríi. Í dag var svipað uppá teningnum, hann hékk einn í gamla leikhúsinu svo hann rölti sér í skuespilhuset og hitti einn þar sem hann hékk yfir eftir hádegi.
Eysteinn kláraði Lína og Lási (Søren og Mette) í kvöld. Hann er orðinn rosalega klár í þessu, er farinn að átta sig meira og meira á því hvernig orðin eru borin fram. Þegar ég sótti stelpuna í dag þá gekk mín bara einhver 7-8 skref til mín og var ekkert að missa jafnvægið. Svo er hún búin að vera á fullu að labba milli húsgagna hérna í dag, rígmontin með sig!
Ýsa í kvöldmatinn, frábær að vanda .
Einar Jóns er líka fluttur til Köben og kíkti á okkur í kvöld ásamt Pétri, ægilega notó. Svona er þetta, allir bara komnir til okkar . Verið öll velkomin, ægilega huggulegt hérna.
Jæja, gott í bili. Búin að mjólka held ég allar fréttir, ef fréttir skyldi kalla .
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.