Góð helgi að baki
27.4.2009 | 08:56
Ég náði nú ekki alveg að klára prófið áður en hátíðin byrjaði í klúbbnum hans Eysteins. Við vorum mætt tímanlega en samt var hljómsveitin hans byrjuð að spila. Það var búið að reisa risa hvítt tjald á svæðinu fyllt bekkjum og fullt af fólki komið. Þegar hann var svo búinn kom hann út freeeekar svekktur að við hefðum misst af honum. Ég sagði honum að við hefðum heyrt í þeim fyrir utan og heyrt þegar hann hafi verið kynntur. Ég sýndi honum svo að klukkan var enn fimm mínútur í þrjú, þó hátíðin hafi átt að byrja klukkan þrjú. En allt í lagi, því þau áttu að spila meira í hléinu. Við komum okkur því fyrir og horfðum á atriðin. Þetta var svo glæsilegt að við stóðum (sátum) eiginlega bara gapandi. Hljóðkerfi, kynnarnir, 14 ára stelpur, voru með sendi-mic og byrjuðu allar setningar á ,,Mine damer og herrer..." og svo voru hver metnaðarfullu atriðin á fætur öðrum, allir voru með og ótrúlega mikil fjölbreytni. Allt frá dans- og söngatriðum, í karatesýningar og kraftlyftingar að ekki sé talað um trúða- og galdraatriðin. Og allt svo flott og vel æft. Og það gekk líka allt svo smurt, engin bið og ekkert vesen. Kynnarnir kynntu næstu atriði meðan verið var að ganga frá og stilla upp fyrir næsta atriði og sögðu brandara ef það tók langan tíma. Bara hreint ótrúlegt hvað mikill metnaður er lagður í barna- og unglingastarf hérna. Við vorum mjööög imponeruð af þessu öllu saman. Svo í hléinu kom hljómsveitin hans Eysteins aftur saman og spilaði fjögur lög sem Halldór tók upp á vídeó en við eigum eftir að setja inn á tölvuna svo ég set bara nokkrar myndir sem ég tók. Við hendum svo inn vídeóinu þegar við erum búin að koma því í tölvuna.


Lengst til vinstri er Anders á gítar, svo Jacob á bassa, þetta eru bestu vinir Eysteins, ég veit ekki hvað söngkonan eða hljómborðsleikarinn heita. Mig minnir að hljómsveitin heiti Black dreams en ég leiðrétti mig síðar ef ég fer með rangt mál .
Ég má nú til með að segja frá því að ég talaði við þann sem hefur verið með yfirumsjón með hljómsveitinni, strákur sem vinnur í klúbbnum. Hitti hann fyrir utan tjaldið og var að segja hvað þau væru orðin ótrúlega góð á ekki lengri tíma. Hann var svoleiðis upprifinn og fullyrti það að þau væru svo góð að ef þau héldu áfram að æfa þá yrðu þau vinsæl hljómsveit í Danmörku eftir svona fimm ár. Ég hló nú bara og sagði ,,Já, heldurðu það?" ,,Ég veit það!" sagði hann og sagði svo að þau væru svo klárir spilarar og mikill metnaður í þeim að þau hefðu náð gríðarlegum árangri á ekki lengri tíma en þetta. Og það skein frá honum hvað hann var gríðarlega montinn af þeim. Hann sagði mér svo að það yrði haldin sumarhátíð 3. júní þar sem þau myndu spila líka og þá myndu þau vera komin með flotta æfingu að spila fyrir fólk áður en þau spila á festivalinu í júlí. Eysteinn er rosalega hrifinn af þessum strák, segir hann allt fyrir þau gera, alltaf vera til nýir gítar- og bassastrengir fyrir strákana og nóg af kjuðum fyrir hann og bara frábær metnaður fyrir þeirra hönd. Gætuð þið ímyndað ykkur svona vinnu og metnað fyrir krakka á Íslandi? Við héldum líka að þetta væri stórafmæli í klúbbnum, því það var svo komið saman aftur í klúbbnum um kvöldið og haldið afmælispartý. En nei, þetta var semsagt 24 ára afmæli klúbbsins .Allavega. Við fórum náttúrulega í röðina að kaupa okkur eitthvað í gogginn og drekka á þessum blíðviðrisdegi og að sjálfsögðu varð Halldór að kaupa sér bjór... bara til að geta sagst hafa keypt sér bjór á fjölskylduskemmtun. Okkur finnst þetta bara óendanlega fyndið
.















Athugasemdir
Þið flytjið aldrei heim eftir alla þessa upplifun í Köben
Það var sól og hitaskúr um helgina = gott veður á okkar mælikvarða.
Þægilega róleg helgi hjá mér en busy hjá S
Við erum sáttir við kosningarnar spurning hvað gerist í ESB
Kristján Jörgen (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 11:12
Enda vinn ég statt og stöðugt að því að flytja bara fjölskylduna út til okkar :) Já, við erum bara sátt líka við niðurstöðu kosninga.
Arnrún, 27.4.2009 kl. 12:56
Flottar myndir, tréð er magnólía. Mig langar svo í eina í garðinn en hef ekkert pláss...
Erla frænka
erlabjörk (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 13:38
Heyrðu takk fyrir það! Alveg ótrúlega fallegt tré og ilmurinn alveg ótrúlegur af því.
Ég ætla að fá mér svona tré í garðinn þegar ég er orðin stór :)
Arnrún, 28.4.2009 kl. 19:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.