Húmorinn er í lagi!

Ég bara varð að setja inn þetta vídeó af Jódísi Guðrún sem Eysteinn tók á símann í gær.  Það er náttúrulega voðalega gróft allt og eiginlega ekkert í fókus en það er samt svo yndislegt.  

Þannig var að stelpan fór eitthvað inn í svefnherbergi og svo kemur hún labbandi út, skælbrosandi, búin að setja á sig þessa húfu og hún var sko greinilega að sýna hvað hún væri fyndin.  Spígsporaði hér um allt, skríkjandi með húfuna á hausnum, alveg eins og lítill jólanissi. -og það fyndna var að við vorum einmitt að horfa á jóladagatalið hérna sem heitir Nissernes ø og er náttúrulega þáttur smekkfullur af nissum Joyful.  -Vantar sko ekkert uppá húmorinn hjá þessari Grin.

Ég vona að þið getið litið framhjá bjánanum þarna í baksýn sem liggur fyrir framan sjónvarpið með tóman ófögnuð Tounge -ég læt vídeóið samt flakka Joyful

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Algjört yndi Knús Knús

Kristján (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 20:21

2 identicon

Jiii hvað hún er orðin dugleg að labba :)

Sakna ykkar voða mikið núna þegar líður að jólunum og hugsa til ykkar á hverjum degi.

Gulla (IP-tala skráð) 14.12.2008 kl. 19:58

3 Smámynd: Arnrún

Æ takk Kristján, hún er algjört krútt :D

-Já Gulla, ég bara trúi því varla að þið séuð búnar að vera hérna, þetta var svo löng bið og svo fljótt að líða. En guði sé lof og þakkargjörð fyrir internetið, það færir okkur nær Íslandi og svo verður æðislegt að fá pabba hérna til okkar yfir jólin :)

Knús til ykkar beggja!!

Arnrún, 15.12.2008 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband