Það eru víst ekki alltaf jólin!
7.1.2009 | 00:05
Nei, nú eru þau að baki, Kertasníkir farinn til dönsku fjallanna og eftir sitjum við í sykursjokki með allt of stóra maga. Eysteinn Aron byrjaði í skólanum aftur í gær og Jódís Guðrún á vöggustofunni. Ég held að þau hafi bæði verið hæst ánægð með það. Allavega var sú stutta ekkert leið yfir því að þurfa að vinka bless þegar við afhentum fóstrunum hana með kökkinn í hálsinum. Leið okkar lá svo niður á kommúnu og Job-center að skrá Halldór atvinnulausan og koma honum á atvinnuleitarlista. Nú er hann því formlega orðinn atvinnulaus. Við skemmtum okkur mikið við að gera ferilskrá hans þar og skrá hitt og þetta á tölvutæku eyðublöðin sem við ekki skildum því við höfðum ekki alveg gert ráð fyrir því að þurfa orðabókina meðferðis í þessa för. Þetta tók sko ekki lítinn tíma skal ég skrifa ykkur en að þessu loknu röltum við um bæinn í nýstingskulda eða um 10 gráðum í mínus sem samsvarar örugglega um 15 stiga frosti heima. Kræsst það var kalt!!! Við komum m.a. við í Frúarkirkjunni og dáðumst að ótrúlega fallegum höggmyndum hins íslenska Bertel Thorvaldsen (þó Danir vilji nú eigna sér hann ) og settumst svo á lítið og sætt kaffihús og fengum okkur kaffi áður en við sóttum stelpuna aftur á vöggustofuna.
Eftir að við skiluðum dömunni af okkur á vöggustofuna í morgun fórum við í Óperuna þar sem Halldór þurfti að skila af sér bók sem hann hafði fengið að láni hjá vini sínum þar og ég notaði tækifærið og lét hann villast með mig um húsið. VAAAAAAAAAAAAAAÁÁÁÁÁÁVÁVÁVÁVÁ!!!!! Þvílíkt og annað eins. Þetta er alveg ótrúlega ótrúlega.... ÓTRÚLEGA flott bygging!!! En á leiðinni þangað tókum við Metro-inn niður á Christjanshavn og þurftum að bíða óvenjulengi eftir strætó þar sem brúin við Torvegade (skurðinum rétt við Metro-stöðina) var opnuð fyrir skipi sem sigldi þar um. Glöggir greinendur sjá brúnna uppi við enda götunnar á þessari mynd. Munið að hægt er að stækka myndina tvisvar sinnum
)

En á þessari mynd stend ég á efstu svölunum inní salnum í Óperunni, sem sést allt of lítið náttúrulega.

Halldór sýndi mér m.a. inn í hljóðklefann í salnum og þó ég þekki nú lítið inná mixera og allt sem því tengist var það augljóst að hér var um geeeeeðveikar græjur að ræða. Það varð nú líka að smella einni af honum við græjurnar .

Eftir skoðunartúrinn og spjall við fyrrum kollega Halldórs tókum við bátinn yfir að Skuespilhuset þar sem Lóa beið okkar í kaffihúsinu. Ef vel er að gáð má sjá hana sitja inní húsinu á bak við, á kaffihúsinu á neðstu hæð, alveg í horninu lengst til vinstri . Við sátum þar í góðan tíma og spjölluðum áður en við Lóa fórum í smá leiðangur að skoða bæinn og útsölur þess. Það verður þó ekki sagt að húsið hafi verið fyllt með útsöluvörum eftir þessa ferð
.



Athugasemdir
ooooooohhhhh.... það er sko stranglega bannað að gera mann svona forvitinn!!!
Kv. Frú forvitin í V18
Valgerður (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 00:40
jamm sammála síðasta ræðumanni skamm skamm að gera manni svona
Mr K
Kristján Jörgen (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 07:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.