Óperuferð og kjetsúpa
7.1.2009 | 22:47
Já, það var nefnilega þannig að þegar við Halldór komum við í Óperunni í gær þá var okkur boðið að koma á æfingu verksins Bróðir minn Ljónshjarta sem frumsýna á núna á föstudaginn. Ég að sjálfsögðu, eins og góðri móður sæmir, sendi drenginn með miða í skólann að hann þyrfti að fara til læknis og þyrfti því að fara fyrr úr skólanum, eða klukkan 10. Við vorum mætt niður í Óperu fyrir hálf tólf og vorum fyrst til að ganga inn í salinn þar sem passinn hans Halldórs gekk enn að öllum dyrum og náðum því bestu sætunum í salnum, á fyrstu svölum fyrir miðju. Það voru þó nokkrir á æfingunni, aðallega skólakrakkar (sem betur fer ekki skólinn hans Eysteins
) en þó allir það gamlir að við þurftum ekki að hafa nokkrar áhyggjur af látum eða ónæði að öðru leyti frá þeim.
Þegar sýningin svo byrjaði var ég guðslifandi fegin að salurinn var myrkur og við hliðina á mér sætu mennirnir í lífi mínu því tárin bara streymdu niður í stríðum straumum. Litla leikhússjúka hjartað mitt var búið að vera í fráhvarfi í allt of langan tíma og svo var þetta náttúrulega bara svo stórkostlegt. Halldóri varð á orði eftir sýninguna að hann hefði ekki gert sér grein fyrir að upphaf sýningarinnar væri svona sorglegt . Þvílík sýning!!! Þetta var ótrúleg upplifun, söngvararnir svo flottir og leikgerðin öll svo ótrúlega flott og spilamennskan maður... úfff!!! Enda var þetta band upp á einhver 30 manns eða svo. Það var lítil nett kona sem lék og söng Snúð litla (eða Tvíböku, eins og hann heitir upp á dönsku og örugglega sænsku þá líka) og svo ungur karlmaður fyrir Jónatan. Þau voru bæði náttúrulega bara frábær, svo og allir hinir.. að sjálfsögðu
. Þetta var náttúrulega allt sungið á dönsku en það besta var að það var textaskilti fyrir ofan sviðið svo maður náði alveg að fylgjast með og Eysteinn líka. Einstaka sinnum spurði hann mig um hvað eitt og annað orð þýddi en annars náði hann algjörlega að fylgja sýningunni.









Athugasemdir
Þið eruð svo heppinn
Ýkt CooL
Kristján Jörgen (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 08:34
Oooh, nú langar mig í óperuna... ;O)
Stórasti bró... (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 02:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.