Hún var nú allavega mjög tillitssöm í þetta skiptið.
26.2.2009 | 11:11
Já, ég fékk að taka prófið á mánudaginn var áður en stelpan kom svo heim frá vöggustofunni... með hita . Hann jókst svo bara um kvöldið og í gær var hún orðin alveg hundlasin.
En svo við byrjum nú á byrjuninni þá fórum við fjölskyldan saman í bakaríið á sunnudaginn og keyptum þessar líka flottu fastelavns-bollur.



Það var nefnilega fastelavn á mánudeginum. Þá fór bekkurinn hans Eysteins í dýragarðinn í tilefni dagsins, víst orðin eitthvað of fullorðin fyrir búninga og þess háttar. Fyrir þá sem ekki þekkja (sem ég held að séu ansi fáir) þá er fastelavn svona sambland af öskudeginum og bolludeginum. Búningar, kötturinn sleginn úr tunnunni og allt það og svo bollurnar með rjómanum og súkkulaðinu. Þá rifjast nú upp fyrir mér fastelavn fyrir 23 árum síðan þegar tvær stöllur gengu í búningunum sínum íbúð úr íbúð í Farum-midpunkt, syngjandi:
Bolle op, bolle ned,
bolle vil jeg have.
Hvis jeg ingen bolle får,
så laver jeg ballade.
Svo lærðum við enn sniðugri söng sem gæfi meira í aðra höndina og sungum þá:
Penge op, penge ned,
penge vil jeg have.
Hvis jeg ingen penge får
så laver jeg ballade.
Ef ég man rétt þá fengum við nú eitthvert klink þarna eftir daginn, en ég man samt mest eftir því að einhver sagðist ekki eiga pening og gaf okkur sitthvort eplið. Vá hvað við vorum skúffaðar. Epli!!!
En á vöggustofunni átti að vera einhver skemmtun um daginn og krakkarnir máttu koma í búningum. Ég steingleymdi þessu náttúrulega, enda sá ég heldur ekki hvernig sú stutta myndi höndla það að vera í einhverjum búning, held hún hefði nú rifið sig úr honum fljótlega. Svo ég setti hana bara í sæt föt og setti svo smá svona framan í hana. Það var ekki auðvelt, en mikið sem okkur fannst hún krúttleg á eftir.












Athugasemdir
Gaman að fá svona krúttlegar myndir af nafna og Jódísi Guðrúnu. Greinilegt að hún þroskast eðlilega. Hlakka til að fá nafna í heimsókn um páskana.
Spóinn.
Eysteinn Óskar (IP-tala skráð) 26.2.2009 kl. 21:56
hún er alger rúsína, minnir mig svo á Sigrúnu!
Erla
Erla Björk (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 15:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.